Dæmi um vandamál!
Dæmi um atriði sem upp hafa komið þegar eigendur hafa sjálfir séð um gerð leigusamnings:
- Leigjandi reynist vera gjaldþrota
- Leigjandi reynist vera á vanskilaskrá og/eða ábyrgðarmenn
- Verðmat á eign er rangt þannig að lengri tíma tekur að leigja húsnæðið
- Tryggingarkostir ekki kannaðir
- Erfitt og tímafrekt að finna “rétta” leigjandann
- Misskilningur á uppsagnarákvæðum
- Ekki staðið rétt að uppsögn
- Ekki staðið rétt að riftun
- Ókunnugt um mun á tímabundnum og ótímabundnum samningum
- Hvernig bregðast á við ef skemmdir verða á húsnæði
- Ókunnugt um hvernig úttekt á húsnæðinu er framkvæmd og hver gerir hana
- Ókunnugt um formreglur og tímafresti sem kveðið er á um í lögum
- Eign selst á leigutíma en ekki var hugað að því við gerð leigusamningsins að hægt væri að segja honum upp og því ekki hægt að afhenda kaupanda húsnæðið á réttum tíma
- Tímafrestur ekki virtir til að gera réttmæta kröfu um skaðabætur eða leiguvanskil
- Hvenær eigi að bregðast við leiguvanskilum og hvernig það er gert
- Ágreiningur og misskilningur sem hefði verið hægt að fyrirbyggja



