Þjónustan ofl.

Þjónustan
Húsaleiga leigumiðlun tekur að sér alla skjalavinnslu vegna leigu og tryggir að samningar séu gerðir á réttan hátt og séu samkvæmt lögum og reglum.

Hagsmuna leigusala og leigjanda er gætt í hvívetna.

Við skoðum eign, tökum myndir, sýnum eign, svörum fyrirspurnum, veitum ráðgjöf varðandi leiguverð, tryggingar o.fl. Við leitum upplýsinga um stöðu leigjanda að því marki sem mögulegt er. Vanskilaskrá leigjanda er skoðuð og leigusali síðan upplýstur um stöðu leigjanda.

Húsaleiga leigumiðlun býður viðskiptavinum sínum einnig að taka að sér innheimtu húsaleigu, eftirlit með húsnæði, aðstoð við útvegun trygginga leigjanda o.fl.

Varðandi kostnað við þjónustu Húsaleigu Leigumiðlunar ehf. er vísað í verðskrá.

Skráning í óskalista
Við hvetjum fólk til að skrá auglýsingu um sig í óskalistanum. Við förum reglulega yfir óskalistann og í hvert sinn er eign kemur inn sendum við þér sms ef eignin sem inn kom gæti hentar þér samkvæmt þeim upplýsingum sem þú hefur sett inn. Þetta á bæði við um íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Enginn veit hvað þú vilt fyrr en þú segir frá því. Orð eru til alls fyrst.

Skráðu eign þína á www.husaleiga.is

Ekkert gjald er tekið nema við leigjum eignina - Fjöldi leigjenda á skrá sem eru að leita að eign eins og þinni

Við aðstoðum þig við eftirfarandi atriði:
Skoðum eignina og tökum myndir
Sýnum eignina
Svörum fyrirspurnum um eignina
Aðstoðum við að meta leiguverði
Aðstoðum við að velja leigjanda
Aðstoðum við val á tryggingum
Könnum hvort leigjendur og ábyrgðarmenn séu á vanskilaskrá
Upplýsum þig og leigjanda um réttindi ykkar og skyldur í upphafi og hvaða áhrif það hefur ef vanefndir verða
Aðstoðum við gerð leigusamnings.

Af hverju á ég að fá aðstoð hjá löggiltum leigumiðlara til að leigja íbúð mína í stað þess að gera það sjálf/sjálfur?

  1. Til að tryggja það að samningur sé rétt gerður
  2. Til að tryggja það að þú fáir upplýsingar um réttindi þín og skyldur strax í upphafi
  3. Til að fá aðstoð við að meta leiguverðið
  4. Til að fá aðstoð við að sýna eign
  5. Til að fá aðstoð við að meta leigjendur
  6. Til að fá ráðleggingar með tryggingar
  7. Til að losna við áreiti
  8. Til að fá upplýsingar strax í upphafi hvernig á að bregðast við vanefndum
  9. Til að gera leigusamning um eignina
  10. Til að geta ávallt leitað til sérfróðs aðila ef þörf er á


Dæmi um atriði sem upp hafa komið þegar eigendur hafa sjálfir séð um gerð leigusamnings:

  1. Leigjandi reynist vera gjaldþrota
  2. Leigjandi reynist vera á vanskilaskrá og/eða ábyrgðarmenn
  3. Verðmat á eign er rangt þannig að lengri tíma tekur að leigja húsnæðið
  4. Tryggingarkostir ekki kannaðir
  5. Erfitt og tímafrekt að finna “rétta” leigjandann
  6. Misskilningur á uppsagnarákvæðum
  7. Ekki staðið rétt að uppsögn
  8. Ekki staðið rétt að riftun
  9. Ókunnugt um mun á tímabundnum og ótímabundnum samningum
  10. Hvernig bregðast á við ef skemmdir verða á húsnæði
  11. Ókunnugt um hvernig úttekt á húsnæðinu er framkvæmd og hver gerir hana
  12. Ókunnugt um formreglur og tímafresti sem kveðið er á um í lögum
  13. Eign selst á leigutíma en ekki var hugað að því við gerð leigusamningsins að hægt væri að segja
  14. honum upp og því ekki hægt að afhenda kaupanda húsnæðið á réttum tíma
  15. Tímafrestur ekki virtir til að gera réttmæta kröfu um skaðabætur eða leiguvanskil
  16. Hvenær eigi að bregðast við leiguvanskilum og hvernig það er gert
  17. Ágreiningur og misskilningur sem hefði verið hægt að fyrirbyggja