Verðskrá



Húsaleiga Leigumiðlun

Gjaldskrá

Ekkert gjald tekið nema við leigjum eignina!

Íbúðarhúsnæði

Leigusali:
Við komum, skoðum eignina, tökum myndir, sýnum eignina og svörum fyrirspurnum um eignina. Við aðstoðum þig við að ákveða leiguverðið, tryggingar, finna rétta leigjandann og gera leigusamninginn.
Verð fyrir alla þjónustuna er eins mánaðar leiga, þó aldrei lægri en 93.375,-
Einnig gerum við leigusamninga fyrir einstaklinga og er þá gjaldið 34.860,-
Verð eru með virðisaukaskatti.

Leigjandi:
Frí þjónusta fyrir leigjendur. Leigjandi skráðu þig á óskalistann. Sem bestar upplýsingar gefa mestan árangur.

Atvinnuhúsnæði:
Greitt er fyrir sem nemur eins mánaða leigu auk VSK. Innifalið í þeirri greiðslu er skoðun og sýning eignarinnar, ráðgjöf, gerð leigusamnings o.fl.

Innheimta húsaleigu: 3% af húsaleigu auk VSK.

Annað:

Þegar við leitum að eign fyrir leigjendur samkvæmt sérstakri beiðni greiða leigjendur eins mánaðarleigu. Það er upplýst til leigjenda í hvert sinn.

Af hverju á ég að leita eftir þjónustu löggiltrar leigumiðlunar þegar ég leigi íbúð mína?

Með því færðu aðstoð sérfræðinga til að finna rétta leigjandann og til að gera leigusamninginn.

Hlutverk leigumiðlara er að gæta þess að leigusamningar séu rétt gerðir og aðilar leigusamningins séu upplýstir strax við gerð hans hvaða þýðingu hann hefur og hvernig þeir eiga að bregðast við ef eitthvað kemur upp á

Löggiltir leigumiðlarar búa yfir góðri þekkingu á þeim reglum sem gilda á þessu sviði og hafa því þekkingu til að gæta hagsmuna leigusala og leigjanda við gerð leigusamnings og framkvæmd hans.

Leigumiðlari ber ábyrgð á því að leigusamningur sé gerður í samræmi við húsaleigulögin. Ber honum skylda til að upplýsa aðila leigusamnings, þ.e. leigjanda og leigusala, um þau réttindi og þær skyldur sem þeir taka á sig með undirritun leigusamnings.

Leigumiðlari getur, auk þess að koma á leigusamningi á milli leigjanda og leigusala og sjá um gerð hans, gegnt ýmsum öðrum störfum fyrir aðila leigusamnings, annan eða báða, í tengslum við framkvæmd leigusamningsins. Getur leigumiðlari þannig t.d. tekið að sér innheimtu og móttöku húsaleigu, eftirlit með umgengni, framkvæmd viðhalds, skiptingu reksturskostnaðar og vörslu tryggingarfjár.

Mikilvægt er að aðilum leigusamnings um íbúðar- eða atvinnuhúsnæði sé ljóst hvaða reglur gilda við gerð leigusamnings, framkvæmd hans og lok. Þegar um íbúðarhúsnæði er að ræða geta aðilar slíks samnings samið um ákveðin atriði sín á milli en önnur ekki.

Samkvæmt húsaleigulögunum gilda ákveðnar reglur um það hvernig aðilar húsaleigusamnings eiga að bera sig að við að koma athugasemdum og kröfum á framfæri. Gæti aðilar ekki þeirra formskilyrða sem húsaleigulögin kveða á um, t.d. varðandi tímafresti og aðferðir, geta þeir glatað rétti sínum. Þannig þarf t.d. leigjandi sem ætlar að bera fyrir sig að ástandi leiguhúsnæðis sé ábótavant að gera það innan ákveðins tíma annars glatar hann þeim rétti. Þá þarf að bregðast rétt og skjótt við ef vanskil verða á leigugreiðslum og huga þarf að tryggingum fyrir réttum efndum strax í upphafi. Þá er mikilvægt að aðilar þekki vel þær reglur sem gilda um uppsögn á leigusamningum.

Þar sem margs er að huga að við gerð, framkvæmd og lok leigusamnings er mikilvægt að vel sé vandað til verka bæði í upphafi og síðar.